Eitt lag á dag, 1.–18. desember. Hlustaðu, svaraðu hver flytur lagið og merktu við á þínu eigin spjaldi.
Jólabingóið og allir vinningarnir eru í samvinnu við góðvini Hljómeyjar. Takk fyrir stuðninginn!
Nótt fyrir tvo á Hótel Vestmannaeyjum með morgunverði og aðgangi að heitum potti og sauna, gjafabréf frá Herjólfi, tvö armbönd á Hljómey 2027, tvær Hljómey derhúfur og tveir taupokar undir bjórinn.
Dreginn úr þeim sem ná þremur línumTvö armbönd á Hljómey 2027, tvær Hljómey derhúfur, tveir taupokar og gjafabréf frá Vöruhúsinu.
Dreginn úr þeim sem ná tveimur línumGjafabréf frá Brothers Brewery, GOTT og Litlu skvísubúðinni.
Dregnir úr þeim sem ná einni línuGjafabréf frá Ísbílnum og Partyland, dregin út meðal þeirra sem skrá sig á póstlista Hljómeyjar.
Vinningarnir eru dregnir í réttri röð, aðalvinningurinn fyrst. Ef enginn nær þremur línum er aðalvinningurinn dreginn úr þeim sem ná tveimur, og ef enginn er eftir með tvær línur er 2. vinningur dreginn úr þeim sem ná einni. Ef ekki eru nógu margir með línu eru vinningarnir dregnir úr öllum þátttakendum. Hver getur aðeins unnið einu sinni.
Það kostar ekkert að vera með.
Netfangið notum við til að hafa samband ef þú vinnur. Sama netfang í öðrum síma opnar sama spjaldið. Það er valfrjálst að skrá sig á póstlistann.
Vinningar að verðmæti yfir 200.000 kr. Aðalvinningurinn (hótelnótt fyrir tvo, Herjólfur og armbönd á Hljómey 2027) er dreginn úr þeim sem ná þremur línum, 2. vinningur úr tveimur línum og 3.–5. vinningur úr einni línu. Gjafabréf frá Ísbílnum og Partyland eru dregin út meðal þeirra sem eru á póstlistanum. Hver getur aðeins unnið einu sinni. Vinningshafar fá póst á netfangið sitt.